Dean Lister á Íslandi

Dean Lister sigrar með fótalás
Dean Lister sigrar andstæðing sinn með einum af sínum frægu fótalásum.

Einn fremsti BJJ maður heims, Dean Lister, kom til landsins í morgun en hann mun dveljast í Mjölni næstu vikuna og halda námskeið þar næsta laugardag. Lister hefur m.a. annars unnið til þriggja gullverðlauna á ADCC, nú síðast í ár. Auk árangurs hans í BJJ og uppgjafarglímu á Lister 18 atvinnumannabardaga að baki í MMA, þar af 6 í UFC. Það er auðvitað mikil lyftistöng fyrir BJJ á Íslandi að fá kappa eins og Dean Lister til landsins. Nánari upplýsingar má finna á vefsetri Mjölnis.

Dean Lister vann gull á ADCC 2011
Dean Lister vann gull á ADCC 2011