Mjölnir Open unglinga 2012

Uppgjafarglímumótið (no-gi) Mjölnir Open fyrir unglinga fer fram sunnudaginn 10. júní næstkomandi í Mjölniskastalanum að Seljavegi 2 í Reykjavík. Keppt er í aldursflokkum unglinga fæddra: 1994-1996/1997-1998/1999-2000. Mótið hefst stundvíslega kl. 11:30 en mæting fyrir keppendur er kl. 11:00.

Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis og lýkur skráningu kl. 19 föstudaginn 8. júní. Skráningagjald er kr. 1.500.

Nánari upplýsingar á vefsetri Mjölnis.