Íslandsmeistaramótið í BJJ verður laugardaginn 17. nóvember

Íslandsmeistaramót fullorðinna í BJJ 2012 verður haldið laugardaginn 17. nóvember næstkomandi í sal Ármenninga í Laugardalnum þar sem það hefur verið undanfarin ár. Það er salurinn Skellur sem er á neðstu hæð Laugarbóls við hliðina á gervigrasvellinum. Húsið opnar kl. 12:00 og fyrstu glímur hefjast uppúr kl. 12:30.

Þyngdarflokkar eru eftirfarandi: 

Karlar
-64 kg
-70 kg
-76 kg
-82,3 kg
-88,3 kg
-94,3 kg
-100,5 kg
+100,5 kg 

Konur
-64 kg
+64 kg

Jafnframt verður keppt í opnum flokki karla og kvenna. 

Vigtað er í Gi (galla) á mótsdag.

Lágmarksaldur fyrir þátttöku í Íslandsmeistaramóti fullorðna er 18 ára aldur.

Keppnisreglur eru samkvæmt reglum BJÍ á Íslandsmeistaramóti fullorðinna.

Þátttökugjald er kr. 1.500 á keppanda. Keppendur skrái sig hjá sínu félagi. Félögin skulu skila lista með nöfnum þátttakanda og þyngdarflokkum sinna félaga til mótsstjóra fyrir kl. 18 fimmtudaginn 15. nóvember. Eftir það er ekki hægt að skrá sig til þátttöku í mótinu.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og skráningar á mótsstjóra, Pétur Marel Gestsson, á netfangið petur@isafold.is