Íslandsmeistaramót fullorðinna færist til 17. nóvember

Mótsstjóri verður Pétur Marel Gestsson.

Fyrri frétt um Íslandsmeistaramótið hefur verið breytt í samræmi við þessa nýju dagsetningu.

Reglur eru samkvæmt keppnisreglum BJÍ á Íslandsmeistaramóti fullorðinna.

Þátttökugjald er kr. 1.500 á keppanda. Keppendur skrái sig hjá sínu félagi. Félögin skulu skila lista með nöfnum þátttakanda og þyngdarflokkum sinna félaga til mótsstjóra fyrir kl. 18 fimmtudaginn 15. nóvember. Eftir það er ekki hægt að skrá sig til þátttöku í mótinu.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og skráningar á mótsstjóra á netfangið petur@isafold.is