Um 100 ungmenni skráð til leiks!

Um hundrað keppendur eru skráðir til leiks á Íslandsmeistaramóti ungmenna í BJJ sem fram fer að Iðavöllum 12 í Keflavík á morgun, sunnudaginn 11. nóvember. Þetta er mikil aukning frá síðasta ári þegar rúmlega fimmtíu keppendur tóku þátt. BJÍ vonast eftir því að fjölmiðlar geri mótinu góð skil enda fara vinsældir BJJ stöðugt vaxandi á Íslandi sem og annars staðar í heiminum.

Nánari upplýsingar um mótið veitir Helgi Rafn Guðmundsson mótsstjóri í síma 690 6682 eða á netfanginu helgiflex@gmail.com.

BJÍ vekur jafnframt athygli á því að Íslandsmeistaramót fullorðinna í BJJ fer fram næsta laugardag 17. nóvember í sal Ármenninga (Skelli) í Laugardal.