Íslandsmeistaramót ungmenna í BJJ verður 10. nóvember

Íslandsmeistaramót ungmenna í BJJ 2013 fer fram 10. nóvember að Iðavöllum 12 í Reykjanesbæ. Húsið opnar kl. 10 og fyrstu glímur hefjast um 10:30.

Íslandsmeistaramót ungamenna 2013Skráning fer fram hjá félögunum og hópskráningar félaga sendist síðan á mótsstjóra, Guðmund Stefán Gunnarsson, á netfangið gudmundurstefan@gmail.com fyrir miðnætti mánudaginn 4. nóvember. Ungmenni fædd árin 1996 – 2005 er gjaldgeng á mótið. Eingöngu er tekið við hópskráningu frá aðildarfélögum BJÍ. Ekki er tekið við skráningu frá einstaklingum eða skráningum sem berast eftir að frestur rennur út. Mótsgjald er kr. 1000. Nánari upplýsingar má fá hjá mótsstjóra.