22 Íslendingar á leiðinni á Evrópumeistaramót í BJJ

Evrópumeistarsmótið í Brasilísku Jiu Jitsu (BJJ) verður haldið í Lissabon dagana 21.-25. janúar næstkomandi. 3400 keppendur eru skráðir til leiks sem gerir þetta að stærsta BJJ móti sem haldið hefur verið til þessa. Keppt er eftir fimm beltaflokkum: hvítu, bláu, fjólubláu, brúnu og svörtu, en auk þess eru keppendur einnig flokkaðir eftir aldri og þyngd.

22 Íslendingar frá fimm félögum eru skráðir til leiks á mótið. Við munum birta fréttir af árangri þeirra samdægurs á Facebook og Instagram síðunum okkar. Íslendingarnir munu keppa á eftirfarandi dögum:

Miðvikudegi, 21. janúar:

  • Guðrún Björk Jónsdóttir, VBC, hvítt belti, -79 kg
  • Ólöf Embla Kristinsdóttir, VBC, hvítt belti, -64 kg
  • Pétur Óskar Þorkelsson, VBC, hvítt belti, -70 kg

Fimmtudegi, 22. janúar:

  • Ingibjörg Birna Ársælsdóttir, Mjölni, blátt belti, -58,5 kg
  • Brynja Finnsdóttir, Fenri, blátt belti, -69 kg
  • Aron Elvar Jónsson, Gracie Barra, blátt belti, -76 kg
  • Kristján Helgi Hafliðason, Mjölni, blátt belti, -76 kg
  • Jóhann Páll Jónsson, Mjölni, blátt belti, -82,3 kg
  • Jóhann Ingi Bjarnason, Fenri, fjólublátt belti, -94,3 kg
  • Daði Steinn Brynjarsson, VBC, fjólublátt belti, -82,3 kg

Föstudegi, 23. janúar:

  • Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Mjölni, blátt belti, -58,5 kg
  • Ása Guðmundsdóttir, Fenri, blátt belti, +79 kg
  • Jón Kolbeinsson, Gracie Barra, blátt belti, -82,3 kg
  • Sigrún Helga Lund, Mjölni, fjólublátt belti, -74 kg
  • Pétur Jónasson, Mjölni, fjólublátt belti, -82,3 kg
  • Vignir Már Sævarsson, Frontline Academy, fjólublátt belti, -82,3 kg
  • Óli Haukur Valtýsson, Gracie Barra, fjólublátt belti, -94,3 kg

Þau keppa í flokki 30 ára og eldri.

Laugardegi, 24. janúar

  • Árni Snær Fjalarsson, Mjölni, hvítt belti, -79,3 kg
  • Sigurður Örn Alfonsson, Mjölni, blátt belti, -79,3 kg

Þeir keppa í flokki unglinga

Sunnudegi, 25. janúar

  • Axel Kristinsson, Mjölni, brúnt belti, -64 kg
  • Þráinn Kolbeinsson, Mjölni, brúnt belti, -94,3 kg
  • Ingþór Örn Valdimarsson, Mjölni, brúnt belti, 94,3 kg