Aðalfundur BJÍ 2010 – Nýr formaður og stjórn

Ágætu félagsmenn

Aðalfundur BJÍ var haldinn að Mýrargötu 2-8 í gær, mánudaginn 6. desember 2010. Síðastliðið rekstrarár var gert upp og hefur mikil gróska einkennt BJJ starfið á Íslandi síðastliðið ár. Fyrsta barnamót BJÍ var haldið á árinu og hefur fráfarandi stjórn haldið tvö Íslandsmót sem hafa gengið mjög vel. Mikil nýliðun er í íþróttinni og er hún að ná útbreiðslu á landsvísu. Á aðalfundinum var nýr formaður og ný stjórn kjörin.

Fráfarandi stjórn þakkar öllum sem lögðu hönd á plóginn fyrir óeigingjarnt framlag sitt til starfs BJÍ og óskar nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.

Nýja stjórn BJÍ skipa

  • Haraldur Dean Nelson, formaður
  • Árni Þór Jónsson, varaformaður
  • Guðjón Svansson, gjaldkeri
  • Björn Vilberg, ritari
  • Daníel Örn Davíðsson, meðstjórnandi

Varamenn eru þeir Arnar Freyr Vigfússon, Óli Haukur Valtýsson og Pétur Marel Gestsson.

Hreiðar Már Hermannsson
fráfarandi formaður BJÍ