Reglubók BJÍ

Reglubók BJÍ Sækja PDF útgáfu reglubókarinnar
Almennt um stigagjöf
  • Stig eru gefin þegar keppandi hefur tryggt stöðuna í 3 sek
    • (T.d. guard pass úr half guard og gefa ökklan til að skora guard pass aftur)
  • Ef keppandi er fastur í uppgjafartaki skorar hann ekki stiginn fyrr en eftir að hafa losað sig úr takinu og haldið stöðu í 3 sek.
    • (T.d. guard pass úr half guard og gefa ökklan til að skora guard pass aftur)
  • 4 stig: Mount, Back mount, Back control
  • 3 stig: Guard pass
  • 2 stig: Takedown, Sweep, Knee on belly

Villa gefin

  1. Villa á stigatöflu
  2. Villa á stigatöflu og Advantage á mótherja
  3. Villa á stigatöflu og Advantage á mótherja
  4. Brottrekstur (DQ)
Takedowns – 2 stig
  • Byrjunar staða: báðir keppendur eru með báða fætur á jörðinni
    • Fellir andstæðinginn á bakið, hliðina eða rass
    • Fellir andstæðing niður á fjóra fætur
      • Minnsta kosti 1 hné þarf að snerta jörðu
      • Keppandi þarf að stjórna baki andstæðings í 3 sek til að fá stig, nóg er að staðsetja sig fyrir aftan andstæðing með minniháttar stjórn.

  • Ekki er hægt að skora takedown nema báðir keppendur hafa staðið í 3 sek eða lengur
    • t.d. ef báðir keppendur standa upp í sweep tilraun og keppandi á botninum er tekinn aftur niður innan 3 sek er ekki talið takedown.
  • Sá keppandi sem endar í toppstöðu eftir takedown tilraun skorar stigin
    • Það á við mótkast eða mótbragð frá jörðu (Sweep) innan 3 sek við lendingu
Guard – Skilgreining
  • Guard er þegar keppandi í botn stöðu notar annan eða báða fætur til að stöðva andstæðing að komast fram hjá þeim og í stjórnandi toppstöðu.
    • Turtle er ekki talið sem guard
  • Sweep er skorað úr guard sókn
  • Svo hægt sé að skora guard pass þarf guard fyrst að vera til staðar.
Guard pull – 0 stig
  • Nauðsynlegt að hafa tök á andstæðingnum áður en guard pull byrjar.
    • Ef keppandi sest á gólfið í guard án taka, skal honum sagt að standa upp
  • Ef takedown tilraun byrjar á undan guard pull-i munu stig vera gefin fyrir takedown
  • Ef guard pull er byrjar á undan takedown tilraun, eru enginn stig gefin
    • Ef vafi liggur hvor byrjaði fyrst er almennt gefið takedown stig
  • Ef andstæðingurinn er með buxnagrip áður en keppandi pullar guard er það talið sem takedown
Sweep – 2 stig
  • Þegar keppandi í botn guard stöðu tekst að komast á topp og setja andstæðinginn í botn stöðu í 3 sek
  • Ef andstæðingur fer í turtle og keppandi kemst upp og fyrir aftan hann með stjórn á baki er skorað sweep.
Knee on belly – 2 stig
  • Þegar keppandi setur hné eða sköflung á maga, rifbein eða bringu með flatan fjær fót í jörðu
    • Ef hné fjær fóts snertir jörðu er ekki skorað fyrir stöðuna
    • Nauðsynlegt er að snúa að andstæðing (face to face)
  • Nauðsynlegt að halda stöðunni í 3 sek.
Guard Pass – 3 stig
  • Þegar keppandi kemst framhjá fótum andstæðings og í stjórnandi toppstöðu (Side control / North-south / mount / back-mount)
    • Nauðsynlegt er að komast inn fyrir hné og olboga fyrir stjórn
  • Guard þarf að vera til staðar til hægt sé að skora guard pass
    • Dæmi 1: Ef keppandi lendir í side control úr takedown er ekki skorað guard pass
    • Dæmi 2: Ef keppandi sleppur úr armbar og kemst í side control án þess að lenda í guard vörn eru engin stig gefin.
Mount & Back Mount – 4 stig
  • Þegar keppandi situr á búk andstæðings, með bæði hné eða annað hné og fót á jörðu
  • Ef ein hendi er föst undir fæti er skorað stig. Ef báðar hendur eru fastar eða annar fótur er yfir öxl er ekki skorað (t.d. í top triangle)
  • Reverse mount skorar ekki stig (snúa baki í andlit andstæðings)
Back control – 4 stig
  • Keppandi nær stjórn á baki andstæðings með báða fætur milli læra án þess að krossa lappir
  • Ef ein hendi er föst undir löpp er skorað stöðuna. Ef báðar hendur eru fastar undir löppunum er ekki skorað.
Hlutverk dómara
  • Hlutleysi
  • Tryggja öryggi keppenda
  • Stöðva glímu ef nauðsynlegt er (Keppendur ættu að stoppa í sömu stöðu og bíða eftir fyrirmælum)
  • Gefa stig, villur og brottrekstur keppanda.
  • Óska eftir fyrstu hjálp ef þörf er á.
  • Hafa auga með ef og þarf að athuga hvort gi og annar útbúnaður sé löglegur.
  • Almennt hreinlæti sé fylgt og einstaklingar séu heilbrigðir
    • t.d. snyrtar neglur, engir skartgripir, kossageit (Ringworm) og almenn veikindi
  • Dómarar eiga alltaf síðasta orðið
  • Halda glímu inni á vellinum
  • Niðurstöðu glímu má aðeins breyta ef:
    • Vitlaus stig voru á stigatöflu
    • Ólöglegt bragð/grip notað sem dómari tók ekki eftir fyrr en eftir glímu
    • Hægt að ráðfæra sig við yfirdómara en vallardómari hefur samt seinasta orðið
    • Ávallt ráðfæra sig við borðadómara/mótstjóra hvort að næsta glíma sé byrjuð. Ef svo er þá er of seint að breyta niðurstöðu glímu
Þrír dómarar
  • Stundum eru valdir 3 dómarar fyrir ákveðnar glímur
    • 1 vallardómari og 2 horndómarar
  • Dómarar hafa jafn mikil gildi og þurfa minnsta kosti 2 að vera sammála um stigagjöf.
  • Ef horndómarar eru sammála valladómara er óþarfi að gefa nein merki. Þögn og er sama og samþykki.
  • Ef horndómarar eru ósammála valladómara skulu þeir standa upp og gefa viðeigandi merki fyrir þeirra ákvörðun.
Dómara bendingar
  • Nota skýrar bendingar með höndum
    • spara raddböndin, oft kliður í salnum og hlutlaus leið til að koma nauðsynlegum upplýsingum á framfæri
  • Rödd er notuð til að byrja og stoppa glímu í bland við ábendingar.
    • „Byrja!“ eða „Stopp!“
    • Ekki er nauðsynlegt fyrir dómara að segja meira
  • Bent er á PDF útgáfu reglubókarinnar til að sjá myndrænar útskýringar á dómarabendingum með skýringum (linkur efst á síðu)
Uppgjafir og endanleg stöðvun
  • Ef keppandi „tappar“ 2x hefur hann gefist upp
  • Ef keppandi tjáir sig með orðum um að stoppa hefur hann gefist upp
  • Ef keppandi öskrar eða gefur önnur hljóð um sársauka er stöðvað glímuna og sá hinn sami tapar
  • Ef keppandi þarf að stoppa vegna vöðvakrampa er það tap
  • Ef það blæðir úr keppanda og fyrstu hjálpar aðilar hafa ekki náð að stöðva hana tvígengis þarf hinn sami að gefa glímuna (2x per sár)
  • Ef keppandi ælir eða hefur aðra erfiðleika með líkamsstjórn er það tap
  • Ef keppandi missir meðvitund hefur hann tapað
Dómaraákvörðun
  • Ef keppendur eru jafnir á stigum og villufjölda
  • Horft er á sókn keppanda til að dæma um sigurvegara
    • Hvor var nærri því að skora næstum því stig í glímunni
    • Hvor var lengur í sóknarstöðu
  • Hægt er að spyrja borðdómara um skoðun en valladómari og horndómarar hafa seinasta orðið
Töf – Villa gefin
  • Bardagavilji ekki til staðar.
    • Skilgreint sem hegðun sem að tefur viljandi glímu án hreyfinga eða sýna vilja til að bæta stöðuna sína eða kom veg fyrir að andstæðingurinn geti bætt stöðuna sína.
    • Vörn hjá keppanda í botn stöðu er ekki töf og eins hjá keppanda í sóknarstöðu í mount eða back control
      • Dæmi um töf: Ekki reynt að bæta stöðuna sína úr side-control eða north south.
      • Ekki reynt að bæta stöðuna sína úr closed guard og komið í veg fyrir að andstæðingur geti gert það sama. (topp og botn).
      • Grípa í belti í standandi stöðu til að koma í veg fyrir að takedown tilraun geti byrjað hjá hvorugum.
    • Double guard pull. Ef báðir keppendur pulla guard á sama tíma hafa þeir 20 sek til að annar standi upp eða komast í uppgjafartak áður en báðir keppendur fá villu.
Almennar villur – Villa gefin
  • Guard pull án taka
  • Flýja út fyrir glímu svæði, standandi eða í gólfglímu
  • Ýta andstæðing viljandi útaf glímu svæði
  • Standa upp og neita byrja glíma aftur (t.d. heimta eða bíða eftir að andstæðingur standi líka upp)
  • Brjóta grip við guard pull og neita halda áfram að glíma við andstæðinginn í gólfinu
  • Viljandi fara úr galla eða belti til að stoppa glímuna
  • Grip með fingur inni í ermi eða buxnaskálm
  • Setja fót inn fyrir galla eða buxur andstæðings eða hendi í gegnum galla.
  • Keppandi tjáir sig gagnvart ákvörðun dómara á meðan á glímu stendur
  • Neitað að fylgja fyrirmælum dómara
  • Labba út af velli áður en úrslit eru kynnt
  • Að grípa í föt andstæðings þegar keppt er í No-gi
  • Setja hendur eða fót í andlit andstæðings
  • Setja fót inn fyrir belti andstæðings
  • Stíga á lapel andstæðings án þess að hafa grip á lapelinu til stuðnings
  • Setja fót á lapelið fyrir aftan háls andstæðings
  • Nota óbundið belti til að aðstoða sig eða kyrkja andstæðing
  • Eyða meir en 20 sek í að laga gallann sinn. (20 sek per aðlögun, galli, belti, buxur)
  • Hlaupa um völlinn og forðast glímu
  • Óviljandi eða viljandi hegðun sem setur andstæðinginn í ólöglega stöðu
  • Hoppa í guard (BJÍ)
  • Í flokkum undir 15 ára og hvít beltinga flokk er einnig öll hoppandi tækni bönnuð. T.d. Flying triangle eða armbar
  • Þegar keppandi fagnar óviðeigandi fyrir, eftir eða á meðan glíma stendur. En ekki jafn alvarleg hegðun og er tekið fram í óíþróttarmannlega kaflanum.
    • Dæmi: Hegðun ætluð til að ógna eða gera lítið úr alvarleika viðburðarins
Alvarleg brot – Brottrekstur (DQ)
  • Ef galli eyðileggst og keppanda tekst ekki að fá annan galla í staðinn innan þess tíma sem er gefin af dómara
  • Flýja út af velli viljandi til að forðast læst uppgjafartak
  • Ef keppandi er fastur í uppgjafartaki og brýtur af sér svo að dómari þurfi að stoppa glímuna
  • Viljandi reyna fá andstæðing sinn DQ með því að þvinga hann í ólöglega stöðu
  • Keppandi er ekki í nærfötum eða í óviðeigandi nærfötum (Kafli 8.3.10 IBJJF reglubók)
  • Notkun krems, olíu eða gels til að gera sig sleipari
  • Notkun efna til að auka núning á líkama
  • Noktun efna til að gera galla sinn sleipari
  • Kyrking án galla með einni eða tveimur höndum utan um háls með pressu á barkakýli
  • Setja hendi fyrir nef eða munn andstæðings til að trufla öndun
  • Ef keppandi ver sig við single leg og haus andstæðings er fyrir utan líkama, með því að skella honum viljandi haus fyrst í gólfið
  • Suplex kast þar sem andstæðingur lendir á haus eða háls fyrst
  • Ef keppandi notar ólögleg brögð eða tækni í sínum flokki. Sjá viðeigandi reglutöflu
Óíþróttamannsleg hegðun – Brottrekstur (DQ)
  • Óvirðing í orðum eða hegðun gagnvart keppanda, dómara eða áhorfanda
    • Blótsyrði, móðganir, ógnanir og grín til að gera lítið úr öðrum
  • Notkun högga, toga í hár, bíta eða viljandi hörð pressa á klofsvæði eða augu

Síðast uppfært: Maí, 2025