Fyrstu æfingabúðir BJJ sambands Íslands

Nú er fyrstu æfingabúðum BJÍ lokið. Tæplega fimmtíu þátttakendur frá fimm félögum, allt frá Akureyri til Selfoss og Suðurnesja, æfðu sundur og saman alla helgina. Mikil vinátta ríkti þvert á félög sem ásamt frábærri þjálfun skilaði sér í einstaklega fróðlegum og lærdómsríkum æfingabúðum.

2015-01-10 15.05.57
Föngulegur hópur glímumanna og kvenna frá fimm félögum víðsvegar af landinu

Fyrir hönd stjórnarinnar vil ég þakka þátttakendum öllum fyrir komuna og þeirra stórkostlega hugarfar og viðmót. Mjölnir MMA fær kærar þakkir fyrir að veita okkur aðgang að Mjölniskastalanum endurgjaldslaust. Þráinn Kolbeinsson, Halldór Logi Valsson og Ingþór Örn Valdimarsson fá sömuleiðis miklar þakkir fyrir sín góðu innlegg. Fyrst og fremst á þó Daði Steinn, sem bar hitann og þungann af þjálfuninni, hjartanlegar þakkir skildar fyrir afburða góða kennslu og frábært skipulag.

Photo 10-01-15 16 46 04
Daði Steinn gefur góð ráð um hvernig er best að fá stig úr half-guard stöðu

Ég er ófeimin að fullyrða að fyrstu æfingabúðir BJÍ hafi slegið í gegn. Þetta munum við endurtaka sem oftast og ég er strax farin að hlakka til næsta skiptis. BJJ á Íslandi er greinilega á mikilli siglingu!

Photo 10-01-15 14 45 02
Stefán Einarsson kátur að vanda

Sigrún Helga Lund.