Hólmganga Mjölnis – æfingamót í gi á laugardaginn

Laugardaginn 13. október næstkomandi verður haldið svokallað æfingamót í Mjölni – Hólmganga. Mótið verður Gi mót að þessu sinni. Hólmganga er yfirleitt innanfélagsmót en þar sem þetta er í tengslum við dómaranámskeið sem BJJ Samband Íslands (BJÍ) stendur fyrir í BJJ og uppgjafarglímu á föstudagskvöldinu, er þetta mót opið öllum félagsmönnum BJÍ. Mótsgjald er kr. 500 og aldurstakmark þátttakenda er 16 ár á árinu. Mótið hefst kl. 13. Keppendur séu mættir í hús kl. 12:30. Skráningu lýkur á föstudag kl. 16. Flokkar fara eftir skráningu en stefnt er að því að skipta bæði í þyngdar- og getuflokka. Að öðru leyti verður keppt eftir reglum BJÍ. Vinsamlegast sendið skráningu mjolnir@mjolnir.is þar sem fram kemur:

  • nafn
  • kennitala
  • aldur
  • þyngd í gi
  • belti
  • félag