Breytinga á staðsetningu Íslandsmeistaramóts ungmenna

Íslandsmeistaramót ungmenna 2012

Breyting hefur orðið á staðsetningu Íslandsmeistaramót ungmenna sem haldið verður um næstu helgi í Reykjanesbæ. Mótið fer fram í nýju húsnæði Sleipnis/UMFN að Iðavöllum 12 í Keflavík, en ekki í Akurskóla eins og áður var auglýst.

Hérna er kort: http://ja.is/kort/#q=index_id%3A436977&x=324496&y=393212&z=8

Beygt er til hægri síðustu beygjuna áður en komið er að hringtorginu sem leggur gatnamótin að Leifsstöð. Semsagt ef þið komið að hringtorgi sem maður fer á til að beygja upp að Leifstöð þá er maður kominn einum útgangi of langt. Eftir að beygt er niður Aðalgötu er þetta fyrsta beygja til hægri og fyrsta húsið vinstra megin í götunni, sama hús og JÁ sem er merkt framaná húsinu.

Nánar um mótið.