Hertar reglur vegna Covid-19 og aðgerðir BJÍ

Nýjar reglur um takmörkun á samkomum vegna COVID-19 tóku gildi föstudaginn 14. ágúst 2020. Helsta breytingin er sú að þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum.

BJÍ hefur sent inn til Heilbrigðisráðaneytisins, Sóttvarnarlæknis og Almannavarna drög að reglum hvað varðar jiujitsu æfingar og er beðið eftir svari og leyfi frá þeim. Ekki er heimilt að hefja æfingar fyrr en staðfesting hefur fengist og mun það verða tilkynnt hér um leið og samþykki berst.

Stjórn BJÍ